Wednesday, December 21, 2005

Óformleg skoðun

Við erum stödd í anddyri.
"Það er ekki hægt að sjá vefhönnuðinn hérna," sagði hann hvíslandi röddu þótt ekkert hefði dregið úr hörkunni og skipunartóninum. "Ekki líta á mig! Líttu á úrið þitt. Líttu niður."
Gamli refurinn leit út undan sér og nikkaði af handahófi til þeirra sem sátu í næstu stólum meðan hann hélt áfram. Það var rétt svo að varir hans bærðust.
"Farðu út um síðustu dyr til vinstri, þær sem ætlaðar eru fyrir farangurinn. Flýttu þér!"
"Nei!" svaraði María álút, með augun á úrinu. "Þú þekkir mig en ég þekki þig ekki! Hver ertu?"
"Vinur mannsins þíns."
"Guð minn góður, er hann hérna?"
"Spurningin er hvað þú ert að gera hér."
"Ég hef gist einu sinni áður á þessu hóteli. Mér datt í hug að hann myndi eftir því."
"Hann gerði það, bara í röngu samhengi, er ég hræddur um."
"Almáttugur, það er aldeilis."